Hvað boðar nýárs blessuð sól í samfélagsmiðlum?

admin • 17. desember 2015

Í lok árs er algengt að fólk líti yfir farinn veg og skyggnist inn í framtíðina og velti  fyrir sér hvert stefni á hinum ýmsu sviðum. Hvert stefnir t.d. í þróun samfélagsmiðla?  Ýmsir sérfræðingar virðast telja að hlutverk þeirra muni enn fara vaxandi og þá ekki bara sem farvegur skilaboða heldur líka sem ritstjórnandi skilaboða og framleiðandi skilaboða og efnis af ýmsu tagi t.d. á myndrænu formi.  Á heimasíðu Alþjóðasamtaka blaðaútgefenda  voru ýmsir sérfræðingar beðnir um að spá í spilin og segja hvert þeir telja þróunina á árinu 2016 í samflélagsmiðlum stefna.

 

 

 

Eftir Sigríður Dögg Auðunsdóttir • 6. nóvember 2026
Press.is, vefur Blaðamannafélags Íslands, er nú kominn í loftið. Vonast er til að hann auðveldi félagsmönnum aðgengi að upplýsingum um allt sem tengist starfsemi félagsins.
Eftir Sigríður Dögg Auðunsdóttir • 4. nóvember 2026
Gestir í fjórða þætti Blaðvarpsins eru Hjálmar Gíslason og Lilja Dögg Jónsdóttir.
Eftir Sigríður Dögg Auðunsdóttir • 4. nóvember 2026
Gervigreindarfyrirtæki nota fréttir og annað efni fjölmiðla til að þjálfa og þróa kerfi sín.