Hvers er sæmdin?

Auðunn Arnórsson • 4. október 2022

Rithöfundasamband Íslands og Hagþenkir, félag höfunda fræðirita og kennslugagna, boða í dag, miðvikudaginn 5. október, til málþings um málefni sem stendur blaðamönnum nærri, eða um höfundarétt og siðferði. Málþingið fer fram í fyrirlestrasal Þjóðminjasafns Íslands og hefst kl. 15:00. 

Í fréttatilkynningu segir: 

„Lífleg umræða hefur skapast að undanförnu um höfundarétt, brot á honum og gráu svæðin sem höfunda­lög ná ekki yfir. Þegar rannsóknir, hugmyndir eða útfærsla þeirra verða kveikja eða innblástur að nýju verki, eða þegar verk verður til á grundvelli eldra verks, sleppir höfundalögunum. Ætti slík nýting að falla undir sæmdarrétt í lögum? Hvar liggja mörkin?“ 

Boðuð dagskrá er þessi:  

Þegar höfundalögunum sleppir – tengsl höfundaréttar og siðfræði
- 
 Sigrún Ingibjörg Gísladóttir lögmaður
Er ritstuldur stuldur? 
- 
Jón Ólafsson heimspekingur, prófessor við Íslensku- og menningardeild Háskóla Íslands 
#Metoo Höfundavörn
- Oddný Eir Ævarsdóttir rithöfundur
Lagagreinar og bókmenntagreinar
-
  Jón Karl Helgason bókmenntafræðingur, prófessor við Íslensku- og menningardeild Háskóla Íslands  

Pallborð - umræður

Fundarstjóri: Sigríður Hagalín Björnsdóttir rithöfundur og fréttamaður 

Henry Alexander Henrysson, heimspekingur og stjórnarmaður í Hagþenki, skrifar hugvekju um umfjöllunarefni málþingsins í aðsendri grein sem birtist á Vísi.is í gær. 

Eftir Sigríður Dögg Auðunsdóttir • 6. nóvember 2026
Press.is, vefur Blaðamannafélags Íslands, er nú kominn í loftið. Vonast er til að hann auðveldi félagsmönnum aðgengi að upplýsingum um allt sem tengist starfsemi félagsins.
Eftir Sigríður Dögg Auðunsdóttir • 4. nóvember 2026
Gestir í fjórða þætti Blaðvarpsins eru Hjálmar Gíslason og Lilja Dögg Jónsdóttir.
Eftir Sigríður Dögg Auðunsdóttir • 4. nóvember 2026
Gervigreindarfyrirtæki nota fréttir og annað efni fjölmiðla til að þjálfa og þróa kerfi sín.