Hvíta-Rússland: Enn sótt að blaðamönnum

Birgir Guðmundsson • 25. ágúst 2020

 „Kúgun á blaðamönnum virðist hafin á ný í Hvíta-Rússlandi,“ segir Ricardo Gutiérrez framkvæmdastjóri Evrópusambands blaðamanna um nýja öldu ofsókna gegn stéttinni.  Sambandið (EFJ) hefur tekið undir kröfur aðildarfélagsins í Hvíta-Rússlandi um að blaðamönnum verði gert kleift að vinna vinnuna sína þar í landi, en að undanförnu hefur verið þrengt mjög að starfsskilyrðum þeirra og nú síðustu daga eru þeir beinlínis beittir margvíslegu ofbeldi og ógnunum og jafnvel handteknir við störf sín og efnið sem þeir hafa aflað ritskoðað og sumt eyðilagt. Gutiérrez  segir EFJ krefjast þess að þeir sem standi fyrir þessum ritskoðunum og ógnunum verði þegar í stað sóttir til saka og þeim refsað. Hann bætir því við að ástæða sé til að ítreka þá kröfu EFJ að refsiaðgerðir Evrópusambandsins beinist ekki aðeins að pólitíkinni og stjórnsýslu hennar heldur líka að leppum þeirra sem stjórna ríkismiðlum.

Eftir Sigríður Dögg Auðunsdóttir • 6. nóvember 2026
Press.is, vefur Blaðamannafélags Íslands, er nú kominn í loftið. Vonast er til að hann auðveldi félagsmönnum aðgengi að upplýsingum um allt sem tengist starfsemi félagsins.
Eftir Sigríður Dögg Auðunsdóttir • 4. nóvember 2026
Gestir í fjórða þætti Blaðvarpsins eru Hjálmar Gíslason og Lilja Dögg Jónsdóttir.
Eftir Sigríður Dögg Auðunsdóttir • 4. nóvember 2026
Gervigreindarfyrirtæki nota fréttir og annað efni fjölmiðla til að þjálfa og þróa kerfi sín.