IFJ biður blaðamenn í Egyptalandi að sýna varúð

admin • 3. júlí 2013

Alþjóðasamband blaðamanna,IFJ, hefur fordæmt morðið á egypska blaðamanninum Salah Eddin Hassan í mótmælum í Port Said sl. föstudag. Hassan sem var 38 ára vann fyrir staðarblaðið Shaab Misr. Hann var drepinn með heimatilbúinni sprengju  þegar hann var að dekka mótmælin gegn Muhamed Morsi forseta.

„Við hörmum dauða kollega okkar sem var drepinn í fullkomnu tilgangsleysi þegar hann var að uppfylla faglegar skyldur sínar sem blaðamaður,“ segir Jim Boumelha forseti IFJ. Hann segir ennfremur: „Hassan, sem skilur eftir sig konu og tvö börn, var staðfastur blaðamaður, sem var á staðnum til að greina frá mótmælunum. Þeir sem eru ábyrgir fyrir dauða hans verða að mæta réttvísinni og standa ábyrgir gerða sinna.“

Alþjóðasambandið hefur hvatt blaðamenn sem starfa í Egyptalandi til að sýna sérstaka varkárni í störfum sínum. „Við höfum vaxandi áhyggjur af miklu ofbeldi í Egyptalandi,“ sagði Boumelha.

Eftir Sigríður Dögg Auðunsdóttir • 6. nóvember 2026
Press.is, vefur Blaðamannafélags Íslands, er nú kominn í loftið. Vonast er til að hann auðveldi félagsmönnum aðgengi að upplýsingum um allt sem tengist starfsemi félagsins.
Eftir Sigríður Dögg Auðunsdóttir • 4. nóvember 2026
Gestir í fjórða þætti Blaðvarpsins eru Hjálmar Gíslason og Lilja Dögg Jónsdóttir.
Eftir Sigríður Dögg Auðunsdóttir • 4. nóvember 2026
Gervigreindarfyrirtæki nota fréttir og annað efni fjölmiðla til að þjálfa og þróa kerfi sín.