IFJ fordæmir morðið á Kenji Goto

admin • 3. febrúar 2015

 

Alþjóðasamband blaðamanna (IFJ) hefur í dag gefið út yfirlýsingu þar sem tekið er undir með dótturfélagi sambandsins í Japan og grimmdarlegt morð vígamanna Íslamska ríkisins á japanska blaðamanninum Kenji Goto er fordæmt. Segir í fordæmingu IFJ að morðið á free lance blaðamanninum dragi athyglina að hinni nýju víglínu í hryðjuverkastarfsemi þar sem blaðamenn eru orðnir að helsta skotmarki.  Kenji Goto var 47 ára stríðsblaðamaður sem hafði flutt fréttir af ýmsum átakasvæðum í heiminum.

 

Eftir Sigríður Dögg Auðunsdóttir • 6. nóvember 2026
Press.is, vefur Blaðamannafélags Íslands, er nú kominn í loftið. Vonast er til að hann auðveldi félagsmönnum aðgengi að upplýsingum um allt sem tengist starfsemi félagsins.
Eftir Sigríður Dögg Auðunsdóttir • 4. nóvember 2026
Gestir í fjórða þætti Blaðvarpsins eru Hjálmar Gíslason og Lilja Dögg Jónsdóttir.
Eftir Sigríður Dögg Auðunsdóttir • 4. nóvember 2026
Gervigreindarfyrirtæki nota fréttir og annað efni fjölmiðla til að þjálfa og þróa kerfi sín.