Ísland gegnir formennsku í Norræna blaðamannasambandinu í fyrsta skipti

Freyja Steingrímsdóttir • 19. september 2025

Ísland gegnir formennsku í Norræna blaðamannasambandinu (NJF) í fyrsta skipti frá stofnun sambandsins. Sigríður Dögg Auðunsdóttur, formaður BÍ, verður þar með forseti sambandsins og Freyja Steingrímsdóttir, framkvæmdastjóri þess næstu tvö ár. Ísland tók við formennsku af Norðmönnum á árlegum fundi forsætisnefndar sambandsins í Osló í dag 19. september.

Tilgangur Norræna blaðamannasambandsins er að vera samstarfsvettvangur blaðamanna á Norðurlöndunum, að skipuleggja sameiginlegar aðgerðir í þágu fjölmiðlafrelsis og blaðamanna á Norðurlöndunum, að styðja við aðgerðir sem einhver landssamtakanna telur nauðsynlegar, skipuleggja vinnuhópa til að fjalla um málefni tengd faginu og viðburði til að fjalla um sameiginleg hagsmunamál blaðamanna. Meðlimir eru danska, finnska, færeyska, íslenska, norska og sænska blaðamannafélagið. Baltnesku blaðamannafélögin eru einnig með áheyrn í forsætisnefnd sambandsins.

„NJF er ómetanlegur samstarfsvettvangur sem gerir fulltrúum Norrænu félaganna kleift að miðla reynslu, þekkingu og tengslaneti auk þess að styðja við bakið hvert á öðru á jafningjagrundvelli enda erum við að glíma við margar sömu áskoranir í breyttu fjölmiðlaumhverfi, segir Sigríður Dögg um formennskuna. Helsta markmið formennsku Íslands er að nýta sameiginlegan slagkraft blaðamanna á Norðurlöndum til að standa vörð um fjölmiðlafrelsi og efla blaðamennsku á tímum mikilla sviptinga á fjölmiðlamarkaði og skautunar í lýðræðislegrar umræðu sem hraðfara tæknibreytingar ýta undir,” heldur hún áfram.

Á fundi forsætisnefndarinnar í Osló var m.a. rætt um öfluga fréttamiðla sem einn af lykilþáttum í öryggis- og varnarmálum ríkja, sameiginlegar ógnir sem steðja að fjölmiðlafrelsi og aðgerðir stjórnvalda á Norðurlöndunum í þágu fréttamiðla og blaðamennsku.

Eftir Sigríður Dögg Auðunsdóttir • 6. nóvember 2026
Press.is, vefur Blaðamannafélags Íslands, er nú kominn í loftið. Vonast er til að hann auðveldi félagsmönnum aðgengi að upplýsingum um allt sem tengist starfsemi félagsins.
Eftir Sigríður Dögg Auðunsdóttir • 4. nóvember 2026
Gestir í fjórða þætti Blaðvarpsins eru Hjálmar Gíslason og Lilja Dögg Jónsdóttir.
Eftir Sigríður Dögg Auðunsdóttir • 4. nóvember 2026
Gervigreindarfyrirtæki nota fréttir og annað efni fjölmiðla til að þjálfa og þróa kerfi sín.