Ítalía: Afnámi óbeins ríkisstyrks mótmælt

Birgir Guðmundsson • 18. september 2018

Bæði Evrópusamband blaðamanna (EFJ) og Alþjóðasamband blaðamanna (IFJ) hafa tekið undir með Blaðamannasambandi Ítalíu, FNSI, og fordæmt hugmyndir ítölsku ríkisstjórnarinnar um að hætta óbeinum stuðningi við dagblöð. Leiðtogi Fimm stjörnu hreyfingarinnar, Luigi Di Maio, segir að dagblöðin sé að menga umræðuna í landinu og noti til þess að hluta almannafé.  Í tengslum við fjárlagagerðina hefur verið til umræðu að draga úr óbeinum stuðningi og um helgina boðaði Di Maio að í undirbúningi væru tilmæli til opinberra stofnana að hætta að kaupa dagblöð. Verði af því er höggvið djúpt í tekjustofna margra blaða.

Eftir Sigríður Dögg Auðunsdóttir • 6. nóvember 2026
Press.is, vefur Blaðamannafélags Íslands, er nú kominn í loftið. Vonast er til að hann auðveldi félagsmönnum aðgengi að upplýsingum um allt sem tengist starfsemi félagsins.
Eftir Sigríður Dögg Auðunsdóttir • 4. nóvember 2026
Gestir í fjórða þætti Blaðvarpsins eru Hjálmar Gíslason og Lilja Dögg Jónsdóttir.
Eftir Sigríður Dögg Auðunsdóttir • 4. nóvember 2026
Gervigreindarfyrirtæki nota fréttir og annað efni fjölmiðla til að þjálfa og þróa kerfi sín.