Jafnréttismál í BNA: Nýmiðlar í sama fari og hefðbundnir miðlar

admin • 25. febrúar 2013

Miðstöð fjölmiðlakvenna í BNA (Women’s Media Center) kynnti fyrir helgina skýrslu sína um stöðu kvenna í bandaríksri fjölmiðlum árið 2012. Fram kemur að að að fréttamiðlar eru „ótrúlega einsleitir þegar kemur að speglun kynjanna“. Fréttasíður sem eru eingöngu á netinu hafa „fallið í sama far og hefðbundnir fjölmiðlar, segir í skýrslunni, því greinar eftir karla eru mun fleiri en greinar eftir konur í fjórum af þeim sex miðlum af þessari tegund sem skoðaðir voru. Í umfjölluninni um forsetakosningarnar í Bandaríkjunum voru greinar eftir karlkyns blaðamenn þrjár á móti hverri einni eftir kvenblaðamann. Þá kemur fram að mun líklegra er að vitnað sé í karla en konur í útvarpi, sjónvarpi og blöðum. Einu jákvæðu fréttirnar um þátttöku kvenna í fjölmiðlum eru að í fyrsta sinn eru kvenfréttastjórnar komnir upp í 30% af heildinni, en þeim fjölgaði heldur frá árinu áður.

Eftir Sigríður Dögg Auðunsdóttir • 6. nóvember 2026
Press.is, vefur Blaðamannafélags Íslands, er nú kominn í loftið. Vonast er til að hann auðveldi félagsmönnum aðgengi að upplýsingum um allt sem tengist starfsemi félagsins.
Eftir Sigríður Dögg Auðunsdóttir • 4. nóvember 2026
Gestir í fjórða þætti Blaðvarpsins eru Hjálmar Gíslason og Lilja Dögg Jónsdóttir.
Eftir Sigríður Dögg Auðunsdóttir • 4. nóvember 2026
Gervigreindarfyrirtæki nota fréttir og annað efni fjölmiðla til að þjálfa og þróa kerfi sín.