Könnun IFJ: Stéttafélög unnið varnarsigur

Birgir Guðmundsson • 9. október 2017

Þrátt fyrir mikla erfiðleika sem fjölmiðlafyrirtæki um allan heim hafa staðið frammi fyrir undanfarin misseri þá hefur samtökum blaðamanna  tekist að hækka laun félags sinna, varðveita störf þeirra og tryggja kjarasamninga undanfarna 12 mánuði.  Þetta er meðal þess sem fram kemur í nýrri könnun sem Alþjóðasamband blaðamanna (IFJ) hefur gert meðal 60 aðildarfélaga sinna í tilefni af alþjóðlegum degi vinnuverndar sem var sl. laugardag. Í könnuninni kemur einnig fram að sterk stéttarfélög í bland við trygga vinnulöggjöf eru lykilatriði í að tryggja góð og eðlileg vinnuskilyrði fyrir blaðamenn.  Neikvæðari atriði komu einnig fram í könnuninni, en ljóst er að andstaða  við frjálsa kjarasamningagerð, lág laun og bág réttindi lausamanna ógna vinnuskilyrðum blaðamannastéttarinnar vítt um veröld.

Eftir Sigríður Dögg Auðunsdóttir • 6. nóvember 2026
Press.is, vefur Blaðamannafélags Íslands, er nú kominn í loftið. Vonast er til að hann auðveldi félagsmönnum aðgengi að upplýsingum um allt sem tengist starfsemi félagsins.
Eftir Sigríður Dögg Auðunsdóttir • 4. nóvember 2026
Gestir í fjórða þætti Blaðvarpsins eru Hjálmar Gíslason og Lilja Dögg Jónsdóttir.
Eftir Sigríður Dögg Auðunsdóttir • 4. nóvember 2026
Gervigreindarfyrirtæki nota fréttir og annað efni fjölmiðla til að þjálfa og þróa kerfi sín.