Like takkinn ólöglegur í Þýskalandi

admin • 22. ágúst 2011

Ástæðan fyrir því að „like“ takkinn er sagður ólöglegur er sá að dómi Thilo Weichert, að Facebook fyrirtækið getur safnað saman „like“ merkingum úr tilteknum tölvum og búið til neyslu- og viðhorfamynd (prófíl) af tilteknu fólki, en slíkt er ólögmætt samkvæmt lögunum.  Segir forstjóri Persónuverndar að hann hafi um talsvert skeið varað vefsíðustjórnendur í fylkinu við því að nota þennan takka, en það hafi ekki borið mikinn árangur. Facebook samsteypan hafnar hins vegar algerlega þessum ásökunum og segist ekki   hafa tæknilega heimild eða getu til a gera þetta og eyði út upplýsingum um einstaklinga innan 90 daga eins og kveðið sé á um í Evrópulögum.
Málið hefur vakið mikla athygli í Þýskalandi og er haft eftir Arne Wulff, forsætisráðherra Schleswig-Holstein  að þessi tilkynning persónuverndar hafi komið honum´i opna skjöldu og að hann muni taka málið upp við kollega sína í öðrum fylkjum Þýskalands til að sjá hvernig túlkanir komi þar fram.
Sjá einnig hér

Eftir Sigríður Dögg Auðunsdóttir • 6. nóvember 2026
Press.is, vefur Blaðamannafélags Íslands, er nú kominn í loftið. Vonast er til að hann auðveldi félagsmönnum aðgengi að upplýsingum um allt sem tengist starfsemi félagsins.
Eftir Sigríður Dögg Auðunsdóttir • 4. nóvember 2026
Gestir í fjórða þætti Blaðvarpsins eru Hjálmar Gíslason og Lilja Dögg Jónsdóttir.
Eftir Sigríður Dögg Auðunsdóttir • 4. nóvember 2026
Gervigreindarfyrirtæki nota fréttir og annað efni fjölmiðla til að þjálfa og þróa kerfi sín.