Ljómyndanámskeið - "masterclass"

Birgir Guðmundsson • 28. janúar 2019

Í tengslum við NJC, Norræna blaðamannaskólann í Árósum, hefur verið skiplagt ljósmyndanámskeið fyrir unga ljósmyndara, með tveimur þekktum ljósyndurum. Þema námskeiðsins er Norræn rússnesk tengsl, og ljósmyndararnir sem kenna á námskeiðinu eru rússneski verðlaunaljósmyndarinn Jana Romanova, og hinn danski DMJX-kennari, Mads Greve.

Hægt er a fá styrki til uppihalds og ferðalaga fyrir þá sem komast að, en námskeiðin sjálf eru án endurgjalds. Um er að ræða tvo námskeiðshluta, annars vegar verður námskeiðið í Kalingrad í byrjun apríl og svo vinna menn á vettvangi og hittast síðan aftur í byrjun maí en þá í Reykjavík.

Þegar er byrjað að taka á móti umsóknum og geta menn fengið frekari  upplýsingar á heimasíðu NJC

Eftir Sigríður Dögg Auðunsdóttir • 6. nóvember 2026
Press.is, vefur Blaðamannafélags Íslands, er nú kominn í loftið. Vonast er til að hann auðveldi félagsmönnum aðgengi að upplýsingum um allt sem tengist starfsemi félagsins.
Eftir Sigríður Dögg Auðunsdóttir • 4. nóvember 2026
Gestir í fjórða þætti Blaðvarpsins eru Hjálmar Gíslason og Lilja Dögg Jónsdóttir.
Eftir Sigríður Dögg Auðunsdóttir • 4. nóvember 2026
Gervigreindarfyrirtæki nota fréttir og annað efni fjölmiðla til að þjálfa og þróa kerfi sín.