Ljósmyndin sem skilgreinir atburðinn í bandarískri sögu

Birgir Guðmundsson • 14. ágúst 2017

Mótmælin í  Charlottsville voru síðasta verkefni blaðaljósmyndarans Ryans Kelly, 30 ára starfsmanns blaðsins The Daily Progress, en hann var að fara að hætta á blaðinu.  Hann stóð  á gagnstéttinni mitt í  mótmælendahópnum  sem var að andæfa hægri öfgaaðgerðum hvítra í bænum, þegar  Dodge Challenger bifreið var ekið beint inn í mannþröngina með þeim afleiðingum að  Heather Heyer, 32 ára lést og að minnsta kosti 19 aðrir slösuðust.  Samkvæmt Columbia Journalism Review segir Ryan Kelly að ef atvik hefðu verið örlítið önnur á laugardaginn, gæti hann hafa verið einn þeirra sem urðu fyrir bílnum. Ljósmynd Kellys af þessum atburði fór víða og Washington Post sagði að þetta væri myndin sem myndi “skilgreina þennan atburð í bandarískri sögu.” 

Eftir Sigríður Dögg Auðunsdóttir • 6. nóvember 2026
Press.is, vefur Blaðamannafélags Íslands, er nú kominn í loftið. Vonast er til að hann auðveldi félagsmönnum aðgengi að upplýsingum um allt sem tengist starfsemi félagsins.
Eftir Sigríður Dögg Auðunsdóttir • 4. nóvember 2026
Gestir í fjórða þætti Blaðvarpsins eru Hjálmar Gíslason og Lilja Dögg Jónsdóttir.
Eftir Sigríður Dögg Auðunsdóttir • 4. nóvember 2026
Gervigreindarfyrirtæki nota fréttir og annað efni fjölmiðla til að þjálfa og þróa kerfi sín.