Lögreglustjóri rýmkar aðgengistakmarkanir blaðamanna

Sigríður Dögg Auðunsdóttir • 19. febrúar 2024

Lögreglustjórinn á Suðurnesjum hefur tilkynnt að frá og með morgundeginum verði blaðamönnum heimilt að fara inn í Grindavík með sama hætti og íbúar og starfsmenn fyrirtækja. Ákvörðunin tekur gildi kl 7 í fyrramálið og samkvæmt henni mega Grindvíkingar og þau sem starfa þar, og þar á meðal blaðamenn, dvelja og starfa í bænum allan sólarhringinn. Lögreglustjóri tekur fram að íbúar og starfsmenn fari inn í bæinn á eigin ábyrgð og að hver og einn beri ábyrgð á eigin athöfnum og athafnaleysi. Vakin er athygli á því að jarðsprungur eru víða í og við bæinn og sprungur geti opnast án fyrirvara. Töluverð hætta er metin á jarðfalli ofan í sprungur og sprunguhreyfingum. Grindavík er lokuð öllum öðrum en íbúum, starfsmönnum og viðbragðsaðilum. Ákvörðunin verður endurskoðuð 29. febrúar.

Blaðamannafélag Íslands skoðar nú hvaða áhrif tilkynningin hefur á mál félagsins gegn ríkinu  sem þingfest var þann 14. febrúar.

Eftir Sigríður Dögg Auðunsdóttir • 6. nóvember 2026
Press.is, vefur Blaðamannafélags Íslands, er nú kominn í loftið. Vonast er til að hann auðveldi félagsmönnum aðgengi að upplýsingum um allt sem tengist starfsemi félagsins.
Eftir Sigríður Dögg Auðunsdóttir • 4. nóvember 2026
Gestir í fjórða þætti Blaðvarpsins eru Hjálmar Gíslason og Lilja Dögg Jónsdóttir.
Eftir Sigríður Dögg Auðunsdóttir • 4. nóvember 2026
Gervigreindarfyrirtæki nota fréttir og annað efni fjölmiðla til að þjálfa og þróa kerfi sín.