Opinn málfundur um orðræðu um stjórnmálafólk

Auðunn Arnórsson • 6. mars 2023

Undir yfirskriftinni „Ótímabært sáðlát, svikarar og frekjur. Má segja hvað sem er um stjórnmálafólk?“ boða Félag stjórnmálafræðinga og Stofnun stjórnsýslufræða og stjórnmála til hádegisfundar um orðræðu og áreitni gagnvart stjórnmálafólki á morgun, þriðjudaginn 7. mars kl.12-13 í Odda 101, Háskóla Íslands. Athygli blaðamanna er vakin á fundinum, enda gegna fjölmiðlar miklu hlutverki í þessu sambandi. 

Í tilkynningu frá aðstandendum fundarins segir: 

„Reglulega er fjallað um að umræða gagnvart stjórnmálafólki sé óvægin og að stjórnmálafólk verði fyrir áreiti vegna starfs síns. Sumir segja að stjórnmálafólk verið bara að láta þetta yfir sig ganga, að þetta sé eðli starfs þeirra, á meðan aðrir benda á að þetta geti orðið til þess að kjörnir fulltrúar endist stutt í starfi.

Umfjöllunarefni hádegisfundarins verður um hvort að umræðan gagnvart stjórnmálafólki sé óvæginn og hvort að það sé í lagi að segja bara hvað sem er um stjórnmálafólk? Gestir fundarins verða þau Sóley Tómasdóttir , kynja- og fjölbreytileikafræðingur, Bríet B. Einarsdóttir , fjölmiðla- og boðskiptafræðingur, og  Eva Marín Hlynsdóttir , prófessor. Í kjölfarið mun  Sigríður Ingibjörg Ingadóttir , fyrrverandi þingmaður, taka til máls og [stýra umræðu] um efni fundarins. 

Fundurinn er opinn öllum, aðgangur er ókeypis og mun fara fram á íslensku.“

Eftir Sigríður Dögg Auðunsdóttir • 6. nóvember 2026
Press.is, vefur Blaðamannafélags Íslands, er nú kominn í loftið. Vonast er til að hann auðveldi félagsmönnum aðgengi að upplýsingum um allt sem tengist starfsemi félagsins.
Eftir Sigríður Dögg Auðunsdóttir • 4. nóvember 2026
Gestir í fjórða þætti Blaðvarpsins eru Hjálmar Gíslason og Lilja Dögg Jónsdóttir.
Eftir Sigríður Dögg Auðunsdóttir • 4. nóvember 2026
Gervigreindarfyrirtæki nota fréttir og annað efni fjölmiðla til að þjálfa og þróa kerfi sín.