Margmiðlunarnám í Borgarholtsskóla

admin • 8. ágúst 2013

Borgarholtsskóli hefur ákveðið að bjóða upp á nýtt og spennandi
margmiðlunarnám með dreifnámsfyrirkomulagi nú í haust. Umsóknarfrestur er
til og með 12. ágúst nk. Námið er ætlað fólki með ólíka þekkingu og
bakgrunn sem vill öðlast alhliða hæfni í hönnun og miðlun efnis með
stafrænni tækni. Námið er bæði verklegt og fræðilegt og hentar vel þeim
sem vilja ná góðum tökum á upplýsingatækni. 

Um er að ræða  diplomunám (4. þrep) þar sem stúdentsprófs eða sambærilegrar menntunar er
krafist.

Námið er hugsað sem alhliða kennsla og þjálfun í framsetningu og vinnslu
efnis með stafrænum hætti; gerð prent-, kvikmynda- og vefefnis svo
eitthvað sé nefnt. Það er trú Borgarholtsskóla að með því að bjóða upp á þetta nám séu þeir  að uppfylla ákveðinn skort á heilsteyptu námi á þessu sviði sem muni
nýtast nemendum vel í starfi.

Umsjónarmaður með náminu er Ari Halldórsson - Netfang:  ari@bhs.is  Sími:
820- 2857

Eftir Sigríður Dögg Auðunsdóttir • 6. nóvember 2026
Press.is, vefur Blaðamannafélags Íslands, er nú kominn í loftið. Vonast er til að hann auðveldi félagsmönnum aðgengi að upplýsingum um allt sem tengist starfsemi félagsins.
Eftir Sigríður Dögg Auðunsdóttir • 4. nóvember 2026
Gestir í fjórða þætti Blaðvarpsins eru Hjálmar Gíslason og Lilja Dögg Jónsdóttir.
Eftir Sigríður Dögg Auðunsdóttir • 4. nóvember 2026
Gervigreindarfyrirtæki nota fréttir og annað efni fjölmiðla til að þjálfa og þróa kerfi sín.