Mikið tap hjá Amedia í Noregi

admin • 14. maí 2014

Amedia fjölmiðlasamsteypan í Noregi sem gefur úr um 70 dagblöð á héraðsvísu og staðbundið og rekur fjölda netmiðla og nær til um 2,5 milljóna Norðmanna á dag, hefur birt afar svartar afkomutölur fyrir fyrsta ársfjórðung þessa árs. Tapið er mest í dagblaðarekstri og nemur tekjusamdrátturinn um 50 milljónum norskra króna. Þessi  staða hefur valdið talsverðum umræðum og óttast ýmsir að til viðbótar niðurskurðar frá því sem verið hefur á undanförnum mánuðum og misserum á ritstjórnum verði gripið. Amedia varð til sem fjölmiðlasamsteypa árið 2012 þegar A-pressen keypti Edda Media af breska fjölmiðlafyrirtækinu Mecom.

 

Eftir Sigríður Dögg Auðunsdóttir • 6. nóvember 2026
Press.is, vefur Blaðamannafélags Íslands, er nú kominn í loftið. Vonast er til að hann auðveldi félagsmönnum aðgengi að upplýsingum um allt sem tengist starfsemi félagsins.
Eftir Sigríður Dögg Auðunsdóttir • 4. nóvember 2026
Gestir í fjórða þætti Blaðvarpsins eru Hjálmar Gíslason og Lilja Dögg Jónsdóttir.
Eftir Sigríður Dögg Auðunsdóttir • 4. nóvember 2026
Gervigreindarfyrirtæki nota fréttir og annað efni fjölmiðla til að þjálfa og þróa kerfi sín.