Mótmæla hrottalegri meðferð breskra blaðamanna í Sýrlandi

admin • 20. maí 2014

Bæði IFJ, Alþjóðasamband blaðamanna og EFJ Evrópusamband blaðamanna hafa fordæmt  sérstaklega hrottalega meðferð á tveimur breskum blaðamönnum og aðstoðarmanni þeirra sem rænt var af uppreisnarmönnum í Sýrlandi í síðustu viku. „Þetta var gjörsamlega yfirgengilegt og hlýtur að hafa verið mikil þolraun fyrir blaðamennina sem í þessu lentu og það var mikill léttir að frétt að þeir hefðu sloppið úr prísundinni,“ segir Jim Boumelha, forseti IFJ.

Blaðamennirnir Anthony Lloyd  hjá Times og ljósmyndarinn Jack Hill  höfðu verið nokkra daga í fréttaferð í  borginni Aleppo og voru á bakaleið til tyrknesku landamæranna þegar uppreisnarmenn stöðvuðu bíl þeirra og Lloynd var bundinn fastur við aftursæti bifreiðarinnar en Hill og aðstoðarmanni þeirra var þröngvað ofan í farangursgeymsluna. Þeir voru síðan fluttir í vöruskemu í bænum Tall Rifat þar sem þeir vor barðir.  Hill og aðstoðarmaðurinn reyndu að flýja en það mistókst og var Hill þá barinn til óbóta en Lloyd skotinn í fæturna til að koma í veg fyrir að hann reyndi að flýja líka.   Á endanum var þeim þó sleppt og þeim komust til Tyrklands eftir að hafa fengið aðhlynningu á sjúkrahúsi.

 

Eftir Sigríður Dögg Auðunsdóttir • 6. nóvember 2026
Press.is, vefur Blaðamannafélags Íslands, er nú kominn í loftið. Vonast er til að hann auðveldi félagsmönnum aðgengi að upplýsingum um allt sem tengist starfsemi félagsins.
Eftir Sigríður Dögg Auðunsdóttir • 4. nóvember 2026
Gestir í fjórða þætti Blaðvarpsins eru Hjálmar Gíslason og Lilja Dögg Jónsdóttir.
Eftir Sigríður Dögg Auðunsdóttir • 4. nóvember 2026
Gervigreindarfyrirtæki nota fréttir og annað efni fjölmiðla til að þjálfa og þróa kerfi sín.