Myndir ársins 2009 - 2016 komnar á vefinn

Birgir Guðmundsson • 12. febrúar 2018

Ljósmyndabækurnar Myndir ársins, sem geyma myndir sem verið hafa á samnefndum sýningum Blaðaljósmyndarafélags Íslands, eru nú að hluta til komnar inn á vefinn. Bækurnar sem um ræðir eru nýjustu bækurnar, þ.e. frá 2016 og aftur til 2009, en vonir standa til að eldri bækur geti komið þarna inn síðar. Bækurnar má skoða með því að smella á kassann  hægra megin efst á forsíðu vefsins þar sem stendur: Myndir ársins, bækur.   Stóru myndirnar sem koma upp á forsíðu vefsins eru fengnar úr síðustu sýningu, en nú gefst fólki kostur á að fletta í eldri bókum líka.

 

Eftir Sigríður Dögg Auðunsdóttir • 6. nóvember 2026
Press.is, vefur Blaðamannafélags Íslands, er nú kominn í loftið. Vonast er til að hann auðveldi félagsmönnum aðgengi að upplýsingum um allt sem tengist starfsemi félagsins.
Eftir Sigríður Dögg Auðunsdóttir • 4. nóvember 2026
Gestir í fjórða þætti Blaðvarpsins eru Hjálmar Gíslason og Lilja Dögg Jónsdóttir.
Eftir Sigríður Dögg Auðunsdóttir • 4. nóvember 2026
Gervigreindarfyrirtæki nota fréttir og annað efni fjölmiðla til að þjálfa og þróa kerfi sín.