Myndir ársins - Nýr Blaðamaður

admin • 30. mars 2015

 

"Þið getið orðið meðal bestu ljósmyndara í heimi, ef þið viljið.  Þetta snýst um æfingu og þjálfun – rétt eins og handbolti.  Þið verðið að greina verkin ykkar og vinnu,  bæta myndatökuna, bera ykkur að með nýjum hætti og umfram allt ræða um verk hvers annars.  Hjálpast að og vinna eins og liðsheild." Þetta eru skilaboð sem  Sören Pagter, formaður dómnefndar vegna ljósmyndakepninnar  Myndir ársins sendir íslenskum blaðaljósmyndurum í pistli sem hann skrifaði þegar hann beið eftir flugi heim til Danmerkur eftir dómnefndarstörfin. Pistillinn ásamt Myndum ársins birtist í nýjum Blaðamanni sem er nú á leið í pósti til félagsmanna. Í blaðinu er auk þess fjallað um blaðamannaverðlaunin, 100 ára gömul átök um Blaðamannafélagið og stjórnmál og fjölmiðla.

 

Eftir Sigríður Dögg Auðunsdóttir • 6. nóvember 2026
Press.is, vefur Blaðamannafélags Íslands, er nú kominn í loftið. Vonast er til að hann auðveldi félagsmönnum aðgengi að upplýsingum um allt sem tengist starfsemi félagsins.
Eftir Sigríður Dögg Auðunsdóttir • 4. nóvember 2026
Gestir í fjórða þætti Blaðvarpsins eru Hjálmar Gíslason og Lilja Dögg Jónsdóttir.
Eftir Sigríður Dögg Auðunsdóttir • 4. nóvember 2026
Gervigreindarfyrirtæki nota fréttir og annað efni fjölmiðla til að þjálfa og þróa kerfi sín.