Myndir ársins - skilafrestur er til 5. febrúar

Eyrún Magnúsdóttir • 12. janúar 2024

Blaðaljósmyndarafélag Íslands auglýsir eftir bestu myndum nýliðins árs í samkeppnina Myndir ársins. Skilafrestur til að skila inn myndum í Myndir ársins 2024 er 5. febrúar næstkomandi. Flokkum hefur verið breytt og þau sem vilja senda inn myndir eru hvött til að kynna sér þær breytingar. 

Blaðaljósmyndarafélag Íslands minnir á skil í „Myndir ársins 2024“. Skilafrestur mynda er til kl. 24:00, mánudaginn 5. febrúar 2024.

Athygli er vakin á að flokkum hefur verið breytt aðeins svo við við hvetjum alla til að kynna sér það á vefnum www.myndirarsins.com  

Myndum er t.d. hægt að skila með því að:

  • Gefa  blimyndir@gmail.com  aðgang að Dropbox möppu.
  • Þjappa skjal sem inniheldur myndirnar og senda sem dropbox-link.
  • Þjappa skjal sem inniheldur myndirnar og senda í gegnum Wetransfer á  blimyndir@gmail.com
  • Notast við eitthvað sambærilegt og hér er talið upp að ofan. 

Lög félagsins og skilareglur eru á  www.myndirarsins.com  og hvetjum við alla til að kynna sér þær gaumgæfilega.

Ef einhver er í vandræðum með þetta þá endilega sendið fyrirspurnir á póstfangið  blimyndir@gmail.com

Allir fá staðfestingarpóst þegar myndir hafa verið mótteknar.

Af gefnu tilefni viljum við minna á að allir sem senda inn myndir eiga að setja inn heiti mynda og stuttan myndatexta við allar innsendar myndir eins og lýst er í skilaleiðbeiningum.

Að lokum viljum við hvetja ykkur öll til að taka þátt og senda ykkar bestu myndir frá nýliðnu ári.

Kveðja,
Stjórn Blaðaljósmyndarafélags Íslands

Eftir Sigríður Dögg Auðunsdóttir • 6. nóvember 2026
Press.is, vefur Blaðamannafélags Íslands, er nú kominn í loftið. Vonast er til að hann auðveldi félagsmönnum aðgengi að upplýsingum um allt sem tengist starfsemi félagsins.
Eftir Sigríður Dögg Auðunsdóttir • 4. nóvember 2026
Gestir í fjórða þætti Blaðvarpsins eru Hjálmar Gíslason og Lilja Dögg Jónsdóttir.
Eftir Sigríður Dögg Auðunsdóttir • 4. nóvember 2026
Gervigreindarfyrirtæki nota fréttir og annað efni fjölmiðla til að þjálfa og þróa kerfi sín.