Námskeið um rannsóknarblaðamennsku

admin • 6. maí 2015

 

Íslenskum blaðamönnum stendur nú til boða að taka þátt í “Matsterclass” um rannsóknarblaðamennsku, sem boðinn er af Norræna blaðamannaskólanum  í Árósum og Network, en námskeiðið er sérstaklega stílað upp á blaðamenn frá Íslandi, Grænlandi og Færeyjum.  Lögð er áherala á aðferðir og vinnubrögð í rannsóknarblaðamennsku og hvernig hægt er að tengjast sívaxandi tengslaneti rannsóknarblaðamanna. Námskeiðið mun fara fram um mánaðarmótin ágúst/september í Reykjavík en seinni hluti þess verður í október í Lillehammer í Noregi.  Félagar í BÍ eru minntir á möguleika sem þeir hafa  á að sækja um styrki fyrir hluta af kostnaði í Endurmenntunarsjóð.

 

Eftir Sigríður Dögg Auðunsdóttir • 6. nóvember 2026
Press.is, vefur Blaðamannafélags Íslands, er nú kominn í loftið. Vonast er til að hann auðveldi félagsmönnum aðgengi að upplýsingum um allt sem tengist starfsemi félagsins.
Eftir Sigríður Dögg Auðunsdóttir • 4. nóvember 2026
Gestir í fjórða þætti Blaðvarpsins eru Hjálmar Gíslason og Lilja Dögg Jónsdóttir.
Eftir Sigríður Dögg Auðunsdóttir • 4. nóvember 2026
Gervigreindarfyrirtæki nota fréttir og annað efni fjölmiðla til að þjálfa og þróa kerfi sín.