Niðurskurður og breytingar hjá BBC

admin • 18. júlí 2014

Fréttahluti BBC þarf að skera niður sem nemur 415  af núverandi  stöðugildum  í stórfelldri sparnaðaráætlun sem framkvæmdastjórinn James Harding hefur tilkynnt um.  Hér er um að ræða hluta af aðgerð sem á að skila 800 sterlingspunda sparnaði en slíkt er sagt nauðsynlegt til að mæta frystingu afnotagjalda árið 2010. Þessi sparnaður á fréttastofum á að skila 48 þúsund punda sparnaði fyrir árið 2017. Nú starfa á vegum fréttadeilda BBC um 8.400 manns þar af um 5.000 blaðamenn sem eru ýmist staðsettir í London og vítt um Bretlandi eða annars staðar í heiminum.  Þá er stefnan sett á að draga verulega úr hefðbundnum fréttaflutningi og láta stofnunina einbeita sér frekar að stafrænni miðlun og nýrri tækni.Á móti þeim 415 núverandi stöðugildum sem leggja á niður munu sköpuð um 195 ný stöðugildi á sviði nýmiðlunar, þannig að raunfækkin starfa verður 220 stöðugildi.

 

Eftir Sigríður Dögg Auðunsdóttir • 6. nóvember 2026
Press.is, vefur Blaðamannafélags Íslands, er nú kominn í loftið. Vonast er til að hann auðveldi félagsmönnum aðgengi að upplýsingum um allt sem tengist starfsemi félagsins.
Eftir Sigríður Dögg Auðunsdóttir • 4. nóvember 2026
Gestir í fjórða þætti Blaðvarpsins eru Hjálmar Gíslason og Lilja Dögg Jónsdóttir.
Eftir Sigríður Dögg Auðunsdóttir • 4. nóvember 2026
Gervigreindarfyrirtæki nota fréttir og annað efni fjölmiðla til að þjálfa og þróa kerfi sín.