Niðurstöður sérfræðingahóps um stjórnarskrárdrögin

admin • 15. nóvember 2012

Niðurstöður sérfræðingahóps um stjórnarskrárdrögin
Opinn fundur föstudaginn 16. nóvember kl. 12:15 –13:30 í dómsal Háskólans í Reykjavík, stofu M103

á vegum Lagadeild Háskólans í Reykjavík í samstarfi við lagadeildir Háskóla Íslands, Háskólans á Akureyri og Háskólans á Bifröst,
Stjórnmálafræðideild Háskóla Íslands og Stofnun stjórnsýslufræða og stjórnmála við HÍ


Nýlega skilaði sérfræðinganefnd niðurstöðum sínum um tillögur stjórnlagaráðs að frumvarpi til nýrrar stjórnarskrár til stjórnskipunar- og eftirlitsnefndar Alþingis. Á fundinum verður vinna, niðurstöður og ábendingar sérfræðinganna kynntar og rætt hvað skuli gera næst í stjórnarskrármálinu. Erindi flytja Páll Þórhallsson skrifstofustjóri í forsætisráðuneytinu og sérfræðingur við lagadeild HR, dr. Oddný Mjöll Arnardóttir, prófessor við lagadeild HÍ og Hafsteinn Þór Hauksson, lektor við lagadeild HÍ sem áttu sæti í sérfræðingahópnum, Kristrún Heimisdóttir, lektor við Háskólann á Akureyri og Bryndís Hlöðversdóttir, rektor Háskólans á Bifröst. Almennar umræður.

Eftir Sigríður Dögg Auðunsdóttir • 6. nóvember 2026
Press.is, vefur Blaðamannafélags Íslands, er nú kominn í loftið. Vonast er til að hann auðveldi félagsmönnum aðgengi að upplýsingum um allt sem tengist starfsemi félagsins.
Eftir Sigríður Dögg Auðunsdóttir • 4. nóvember 2026
Gestir í fjórða þætti Blaðvarpsins eru Hjálmar Gíslason og Lilja Dögg Jónsdóttir.
Eftir Sigríður Dögg Auðunsdóttir • 4. nóvember 2026
Gervigreindarfyrirtæki nota fréttir og annað efni fjölmiðla til að þjálfa og þróa kerfi sín.