Niðurskurður hjá NRK

Birgir Guðmundsson • 28. ágúst 2018

NRK, norska ríkisútvarpið, er nú að endurskipuleggja starfsemi sína og í því ferli stendur til að fækka talsvert starfsfólki. Þetta hefur valdið talsverðum deilum og áhyggjum meðal starfsmanna fjölmiðlilsins og m.a. hefur norska Blaðamannafélagið nú stefns NRK fyrir ólögmætar uppsagnir.  Það sem málið snýst m.a. um er að NRK hefur notað Austurlands deildina hjá sér sem eins konar úrtakseiningu þar sem endurskipulagningin fer fram og tilheyrandi niðurskurður á starfsfólki. Hins vegar eru mjög stífar reglur um uppsagir og starfsaldur hjá norskum blaðamönnum hjá NRK og skýst deilan um það.  Hitt virðist þó nokkuð ljóst að enn er niðurskurður og fækkun starfsfólks framundan og sagði lögmaður NRK það beinlínis í réttarsal í gær.

Sjá einnig hér og hér

Eftir Sigríður Dögg Auðunsdóttir • 6. nóvember 2026
Press.is, vefur Blaðamannafélags Íslands, er nú kominn í loftið. Vonast er til að hann auðveldi félagsmönnum aðgengi að upplýsingum um allt sem tengist starfsemi félagsins.
Eftir Sigríður Dögg Auðunsdóttir • 4. nóvember 2026
Gestir í fjórða þætti Blaðvarpsins eru Hjálmar Gíslason og Lilja Dögg Jónsdóttir.
Eftir Sigríður Dögg Auðunsdóttir • 4. nóvember 2026
Gervigreindarfyrirtæki nota fréttir og annað efni fjölmiðla til að þjálfa og þróa kerfi sín.