Noregur: Deilt um skerðingu á fjölmiðlastyrkjum

admin • 12. október 2016

Umræða á sér nú stað í Noregi um það hvort  réttlætanlegt sé að skera niður styrki til fjölmiðla um 10 milljónir norskra króna, eða rúmlega 140 milljónir íslenskra króna, eins og gert er ráð fyrir í fjárlagafrumvarpi fyrir 2017.  Talsmenn dagblaða hafa sagt þetta koma á erfiðum tíma, þegar auglýsingamarkaðurinn sé blöðunum óhagstæður og rekstrastaða fjölmiðla ekki góð. Það er sá hluti styrkjakerfisins sem flokkast undir framleiðslustyrki sem skera á niður en heildar styrkir til fjölmiðlakerfisins í Noregi verða eftir sem áður rúmir 5,2 milljarðar samkvæmt frumvarpinu. Styrkir til fjölmiðla hafa verið hluti af norrænu umhverfi um áratuga skeið og í Noregi eru þessir styrkir taldir grundvallaratriði til að halda úti fjölbreytni og fjölræði í fjölmiðlum sem sé síðan forsenda lýðræðislegrar umræðu í samfélaginu.  Norska ríkisútvarpið NRK er ekki á augýsingamarkaði.

Í töflunni með þessari færslu má sjá hverig fjölmiðlastyrkir í Noregi skiptast milli einstakra þátta eins og þeir birtast í fjálögum og í fjárlagafrumvarpi 2017. Miðað er við gegni norsku krónunnar eins og það er í dag.

 

Eftir Sigríður Dögg Auðunsdóttir • 6. nóvember 2026
Press.is, vefur Blaðamannafélags Íslands, er nú kominn í loftið. Vonast er til að hann auðveldi félagsmönnum aðgengi að upplýsingum um allt sem tengist starfsemi félagsins.
Eftir Sigríður Dögg Auðunsdóttir • 4. nóvember 2026
Gestir í fjórða þætti Blaðvarpsins eru Hjálmar Gíslason og Lilja Dögg Jónsdóttir.
Eftir Sigríður Dögg Auðunsdóttir • 4. nóvember 2026
Gervigreindarfyrirtæki nota fréttir og annað efni fjölmiðla til að þjálfa og þróa kerfi sín.