Noregur: Portrett af hundum og eigendum þeirra

Birgir Guðmundsson • 1. mars 2018

Portrett myndataka getur verið með ýmsu móti og skemmtilegt verkefni sem birtist í helgarblaða VG í  Noregi í sumar er nú komið í úrslit í alþjóðlegri ljósmyndakeppni sem kallast Sony World Photography Awards.  Verkefnið fólst í því að taka portrett myndir af hundum og eigendum þeirra, en þemað var að sýna líkindin með hundunum og eigendum þeirra. Niðurstaðan er að mörgu leyti sláandi, en ekki var notast við neinar sérstakar förðunar- eða stílbrellur á myndunum þó þær hafi vissulega verið unnar eftir á eins og gerist og gengur. Á vefsíðu norska Blaðamannsins er nú að finna skemmtilegt viðtal við ljósmyndarann, Krister Sörbö. Þar kemur m.a. fram að það sé erfiðara að ná góðri portrett mynd af manni en hundi!

Eftir Sigríður Dögg Auðunsdóttir • 6. nóvember 2026
Press.is, vefur Blaðamannafélags Íslands, er nú kominn í loftið. Vonast er til að hann auðveldi félagsmönnum aðgengi að upplýsingum um allt sem tengist starfsemi félagsins.
Eftir Sigríður Dögg Auðunsdóttir • 4. nóvember 2026
Gestir í fjórða þætti Blaðvarpsins eru Hjálmar Gíslason og Lilja Dögg Jónsdóttir.
Eftir Sigríður Dögg Auðunsdóttir • 4. nóvember 2026
Gervigreindarfyrirtæki nota fréttir og annað efni fjölmiðla til að þjálfa og þróa kerfi sín.