Noregur: Rammasamningur fyrir lausamenn

Birgir Guðmundsson • 4. apríl 2018

Samtök fjölmiðlafyrirtækja ( MBL) og Samtök lausamanna í blaðamennsku(free lance)  í Noregi skrifuðu undir rammasamning á dögunum um kaup og kjör lausamanna, þar á meðal höfundarétt. Samtök lausamanna eru undirsamtök Blaðamannafélags Noregs (NJ) og tók þessi nýi samningur gildi nú á sunnudaginn, þann 1. apríl.  Þessi samningur þykir marka nokkur tímamót á evrópska vísu og hefur hann verið í undirbúningi í tæp tvö ár, eða síðan í byrjun apríl 2016. Þetta felur m.a. í sér að NJ og MBL munu útbúa sérstakt eyðublað  sem lausmenn geta notað til að gera verksamning og í þeim samningi er óheimilt að semja um lakari kjör en kveðið er á um í rammasamningnum.

Eftir Sigríður Dögg Auðunsdóttir • 6. nóvember 2026
Press.is, vefur Blaðamannafélags Íslands, er nú kominn í loftið. Vonast er til að hann auðveldi félagsmönnum aðgengi að upplýsingum um allt sem tengist starfsemi félagsins.
Eftir Sigríður Dögg Auðunsdóttir • 4. nóvember 2026
Gestir í fjórða þætti Blaðvarpsins eru Hjálmar Gíslason og Lilja Dögg Jónsdóttir.
Eftir Sigríður Dögg Auðunsdóttir • 4. nóvember 2026
Gervigreindarfyrirtæki nota fréttir og annað efni fjölmiðla til að þjálfa og þróa kerfi sín.