Norræni blaðamannaskólinn – Árósanámskeiðið

Birgir Guðmundsson • 30. apríl 2018

Enn á ný býður NJC, Norræna endurmenntunarstofnunin, upp á 3 vikna námskeið fyrir norræna blaðamenn. Íslenskir blaðamenn hafa verið duglegir við að nýta þetta einstaka tækifæri til þess að ná sér í góða endurmenntun og byggja samtímis upp mikilvægt tengslanet í grannlöndunum.

Árósanámskeiðið verður haldið frá 21. október til 9. nóvember og verður skipt niður í þrjár einingar, ein vika á Árósum, ein í Osló og ein í Brussel. Umsóknarfrestur er til 5. júni en alls geta 18 blaðamenn fengið inni á námskeiðinu. Hægt er að sækja um á njc@dmjx.dk.

Á námskeiðinu verður fjallað um þau mál sem eru í brennidepli á Norðurlöndum, Norðurlöndin og Evrópusambandið og  undanfarin ár hefur verið lögð aukin áhersla á samfélagsmiðla og þar hafa margir blaðamenn stígið sín fyrstu alvöru skref með að nýta þá í daglegu starfi.

Íslendingar hafa verið duglegir við að nýta þetta einstaka tækifæri til þess að ná sér í ný sambönd og fá innsýn inn í norræn málefni. Námskeiðið fer fram að hluta til á skandinavisku en að hluta til á ensku og John Frölich, yfirmaður NJC, segist gjarnan vilja sjá minnst 2-3 Íslendinga á námskeiðinu að þessu sinni. Vakin er athygli á að hægt er að sækja um styrk í endurmenntunarsjóð til að mæta hlua kostnaðar vegna þátttöku í NJC-námskeiðinu. 

Sjá heimasíðu NJC hér

Eftir Sigríður Dögg Auðunsdóttir • 6. nóvember 2026
Press.is, vefur Blaðamannafélags Íslands, er nú kominn í loftið. Vonast er til að hann auðveldi félagsmönnum aðgengi að upplýsingum um allt sem tengist starfsemi félagsins.
Eftir Sigríður Dögg Auðunsdóttir • 4. nóvember 2026
Gestir í fjórða þætti Blaðvarpsins eru Hjálmar Gíslason og Lilja Dögg Jónsdóttir.
Eftir Sigríður Dögg Auðunsdóttir • 4. nóvember 2026
Gervigreindarfyrirtæki nota fréttir og annað efni fjölmiðla til að þjálfa og þróa kerfi sín.