Norskir blaðamenn telja niðurskurð bitna á gæðum

admin • 28. desember 2012

Mikill meirihluti blaðamanna (tæp 89%) sem vinna á þeim fjórum landsdekkandi blöðum í Noregi sem útgáfufyrirtækið Schibsted á og rekur, telja að sparnaðaraðgerðir sem fyrirtækið hefur gripið til muni koma illa við gæði blaðamennsku á viðkomandi miðlum. Norski Blaðamaðurinn gerði könnun á viðhorfum rúmlega 600 blaðamanna á Schibsted blöðunum Aftenposten, Bergens Tidende, Stavanger Aftenblad og Fædrelandsvennen til sparnaðaraðgerðanna og útfærslu þeirra og kom fram nokkur munum á viðhorfum blaðamanna eftir blöðum, en almennt voru blaðamenn ósáttir við hvernig að sparnaðinum var staðið og margir hafa litla tiltrú á framtíðarrekstri blaða sinni, þó vissulega séu líka margir þokkalega bjartsýnir.

Eftir Sigríður Dögg Auðunsdóttir • 6. nóvember 2026
Press.is, vefur Blaðamannafélags Íslands, er nú kominn í loftið. Vonast er til að hann auðveldi félagsmönnum aðgengi að upplýsingum um allt sem tengist starfsemi félagsins.
Eftir Sigríður Dögg Auðunsdóttir • 4. nóvember 2026
Gestir í fjórða þætti Blaðvarpsins eru Hjálmar Gíslason og Lilja Dögg Jónsdóttir.
Eftir Sigríður Dögg Auðunsdóttir • 4. nóvember 2026
Gervigreindarfyrirtæki nota fréttir og annað efni fjölmiðla til að þjálfa og þróa kerfi sín.