NUJ mun láta í sér heyra!

admin • 11. janúar 2013

Svo virðist sem samtök blaðamanna í Bretlandi eigi að vera á hliðarlínunni þegar gerðar eru tillögur um nýtt eftirlitskerfi með siðferði og vinnubrögðum í breskum fjölmiðlum líkt og lagt ver til í Leveson skýrslunni. Í það minnsta var einungis ritstjórum og yfirmönnum stóru miðlanna boðið til samráðs við stjórnvöld í gær til að fara yfir þessi mál.

Michelle Stanistreet, framkvæmdastjóri hjá NUJ, Blaðamannasambandi Bretlands ritaði af þessu tilefni grein í Guardian í gær og sagði að þó blaðamönnum hafi ekki verið boðið að kræsingaborði ritstjóra og ráðherra, þá geti menn treyst því að NUJ muni láta heyra í sér með skýrum og áberandi hætti ef þær tillögur sem fram koma kveða ekki á um regluramma sem er í raun og sann óháður stjórnvöldum og hagsmunaaðilum. Það dugi ekki að koma með gamla kerfið kannski örlítið breytt – þá væri starf Leveson nefndarinnar í raun unnið fyrir lítið.

Stanistreet bendir á að í skýrslu Leveson nefndarinnar komi fram að það þurfi að verða almenn umbreyting á þeirri menningu sem ríkir á ritstjórnum í landinu til að koma í veg fyrir að blaðamenn séu í raun þvingaðir og settir í þá stöðu að skrifa og vinna með þeim hætti sem varð tilefni Leveson-rannsóknarinnar. Blaðamannasambandið (NUJ) sé enn að glíma við mál sem komið hafa upp á “virðulegum ritstjórnum” þar sem blaðamenn verða fyrir þrýstingi og einelti - sem bendi til að menn hafi ekki dregið mikla lærdóma af nýliðinni fortíð. Hún bendir á að ritstjórar og útgefendur verði að viðurkenna rétt blaðamanna sem stéttar til að eiga sameiginlegan talsmann í NUJ í þessu endurskoðunarferli öllu, ekki síst vegna þess að rétturinn til virðingar í vinnunni sé best tryggður með aðkomu og viðurkenningu stéttarfélagsins. Blaðamenn og almenningur þurfi að koma að þessu ekki síður en ritstjórarnir, segir Stanistreet.
Sjá grein Stanistreet hér

Eftir Sigríður Dögg Auðunsdóttir • 6. nóvember 2026
Press.is, vefur Blaðamannafélags Íslands, er nú kominn í loftið. Vonast er til að hann auðveldi félagsmönnum aðgengi að upplýsingum um allt sem tengist starfsemi félagsins.
Eftir Sigríður Dögg Auðunsdóttir • 4. nóvember 2026
Gestir í fjórða þætti Blaðvarpsins eru Hjálmar Gíslason og Lilja Dögg Jónsdóttir.
Eftir Sigríður Dögg Auðunsdóttir • 4. nóvember 2026
Gervigreindarfyrirtæki nota fréttir og annað efni fjölmiðla til að þjálfa og þróa kerfi sín.