Nýr framkvæmdastjóri IFJ

admin • 9. nóvember 2015

Anthony Bellanger heitir nýr framkvæmdastjóri Alþjóðasambands blaðamanna (IFJ).  Ákvörðun um ráðningu Bellangers var tekin af framkvæmdastjórn IFJ  í lok síðasta mánaðar og kemur hann í stað hinnar brasilísku  Beth Costa sem gegndi stöðunni frá 2011.

Bellanger er margreyndur í fagfélagsstarfi blaðamanna en hann hefur um árabil starfað með franska blaðamannafélaginu SNJ og var framkvæmdastjóri þess frá 2011-2014. Þá hefur  hann starfað sem aðstoðarframkvæmdastjóri IFJ frá  2014 þannig að hann þekkir vel til starfsemi alþjóðasambandsins.   Bellanger er 42 ára og með doktorspróf í mannkynssögu. Hann hefur lengst at sínum starfsferli verið á prentmiðlum í Frakklandi.

 

Eftir Sigríður Dögg Auðunsdóttir • 6. nóvember 2026
Press.is, vefur Blaðamannafélags Íslands, er nú kominn í loftið. Vonast er til að hann auðveldi félagsmönnum aðgengi að upplýsingum um allt sem tengist starfsemi félagsins.
Eftir Sigríður Dögg Auðunsdóttir • 4. nóvember 2026
Gestir í fjórða þætti Blaðvarpsins eru Hjálmar Gíslason og Lilja Dögg Jónsdóttir.
Eftir Sigríður Dögg Auðunsdóttir • 4. nóvember 2026
Gervigreindarfyrirtæki nota fréttir og annað efni fjölmiðla til að þjálfa og þróa kerfi sín.