Óli varaformaður- Egill gjaldkeri
admin • 30. október 2013
Á síðasta fundi stjórnar Blaðamannafélagsins skipti stjórnin með sér verkum upp á nýtt, en Sigurður Már Jónsson, sem verið hafði varaformaður sagði sig frá trúnaðarstörfum fyrir félagið á dögunum þegar hann tók við starfi blaðafulltrúa ríkisstjórnarinnar.
Nýr varaformaður er Óli Kristján Ármannsson sem var áður gjaldkeri stjórnar. Við starfi gjaldkera tekur Egill Ólafsson.



