Opið fyrir tilnefningar til Evrópuverðlauna
Fram til níunda desember næstkomandi geta blaðamenn frá öllum löndum Evrópu lagt sín bestu verk frá þessu ári fyrir dómnefnd Evrópsku blaðamennskuverðlaunanna ( European Press Prize) og keppt um verðlaun næsta árs, en auk heiðursins fylgja þeim 10.000 evra peningaverðlaun.
Að þessu sinni verða veittar viðurkenningar í fimm flokkum blaðamennsku:
Framúrskarandi frásögn – fyrir blaðamennskulega frásögn í hæsta gæðaflokki
Rannsóknarblaðamennska – fyrir hugrakka umfjöllun sem leiðir í ljós staðreyndir sem annars hefðu legið í þagnargildi
Nýsköpun – fyrir blaðamennskuverkefni sem leitast við að nema nýjar lendur, á netinu eða utan þess
Opinber umræða – fyrir verk sem ganga lengra en að segja frá og greina fréttir og glæða opinbera umræðu um samfélagslega mikilvæg mál
Fólksflutningafréttamennska – fyrir frásagnir sem beina kastjósinu að félagslegu, efnahagslegu og menningarlegu framlagi innflytjenda til bæði landanna sem þeir flytja frá og til
Allar nánari upplýsingar er að finna hér.



