Orlofshús BÍ um páska
admin • 13. mars 2014
Athygli félagsmanna er vakin á því að u
msóknarfrestur til þess að sækja um leigu í orlofshúsum BÍ í Stykkishólmi, Brekkuskógi og á Akureyri um páska 2014 er til fimmtudagsins 20. mars næstkomandi. Umsóknir sendist á netfangið
orlofshus@press.is
Leigutími er frá miðvikudeginum 16. apríl til þriðjudagsins 22. apríl. Leiguverð er það sama og að sumri, 15 þús. fyrir Litlu-Brekku, 20 þús. fyrir Stóru-Brekku og 28 þús. fyrir Stykkishólm, en þar eru þrif innifalin.



