Orlofshús BÍ um páska
admin • 6. febrúar 2013
Auglýst er eftir umsóknum vegna dvalar í orlofshúsum BÍ um páskana
2013 frá miðvikudeginum 27. mars til þriðjudagsins 2. apríl.
Orlofshúsin eru fjögur talsins, raðhús á Akureyri, Stóra-Brekka,
Litla-Brekka og Stykkishólmur. Leiguupphæð um páska er sú sama og
leiguupphæð að sumri.
Umsóknarfrestur er til föstudagsins 15. mars og ber að sækja um á
netfangið
orlofshus@press.is
Við úthlutun er tekið mið af því hvort félagar eru fullgildir, hversu
lengi þeir hafa verið í félaginu og hvort þeir hafi áður fengið
úthlutað um páska.



