Óskað eftir tilnefningum til fjölmiðlaverðlaunaverðlauna

admin • 13. júní 2012

Fyrsti handhafi Fjölmiðlaverðalaunanna var Ragnar Axelsson, ljósmyndari á Morgunblaðinu, sem hlaut þau fyrir að beina sjónum að náttúruvernd og samspili manns og náttúru í verkum sínum.

Náttúruverndarviðurkenning Sigríðar í Brattholti

Þá verður náttúruverndarviðurkenning Sigríðar í Brattholti veitt einstaklingi sem hefur unnið markvert starf á sviði náttúruverndar. Sigríður Tómasdóttir, fæddist 24. febrúar 1871 í Brattholti. Sigríður var baráttukona og náttúruverndarsinni sem lagði mikið á sig í baráttu gegn virkjun Gullfoss. Hún var því brautryðjandi á sviði náttúruverndarmála hér á landi og hefur æ síðan verið íslenskum náttúruverndarsinnum fyrirmynd.

Viðurkenningin var í fyrsta sinn veitt árið 2010. Það ár og árið á eftir var hún afhent á Degi umhverfisins en frá og með árinu í ár verður afhending viðurkenningarinnar á Degi íslenskrar náttúru.

Fyrri viðurkenningarhafar eru Sigrún Helgadóttir sem hlaut viðurkenninguna árið 2010 fyrir framlag sitt til fræðslu barna og ungmenna, og Þóra Ellen Þórhallsdóttir sem hlaut viðurkenninguna árið 2011 fyrir vísindastörf sín í þágu íslenskrar náttúru.

Óskað er eftir tilnefningum til beggja viðurkenninga fyrir 15. ágúst 2011. Tilnefningar með rökstuðningi sendist Umhverfisráðuneytinu, Skuggasundi 1, 150 Reykjavík, eða á netfangið postur@umhverfisr áðuneyti.is

Eftir Sigríður Dögg Auðunsdóttir • 6. nóvember 2026
Press.is, vefur Blaðamannafélags Íslands, er nú kominn í loftið. Vonast er til að hann auðveldi félagsmönnum aðgengi að upplýsingum um allt sem tengist starfsemi félagsins.
Eftir Sigríður Dögg Auðunsdóttir • 4. nóvember 2026
Gestir í fjórða þætti Blaðvarpsins eru Hjálmar Gíslason og Lilja Dögg Jónsdóttir.
Eftir Sigríður Dögg Auðunsdóttir • 4. nóvember 2026
Gervigreindarfyrirtæki nota fréttir og annað efni fjölmiðla til að þjálfa og þróa kerfi sín.