Páll fær umhverfisverðlaun

admin • 16. september 2013

Umhverfis- og auðlindaráðherra, Sigurður Ingi Jóhannsson, veitti í dag í tilefni af Degi íslenskrar náttúru, Páli Steingrímssyni, kvikmyndagerðarmanni, fjölmiðlaverðlaun umhverfis- og auðlindaráðuneytisins. Við sama tækifæri veitti hann Vigdísi Finnbogadóttur, Náttúruverndarviðurkenningu Sigríðar í Brattholti.

Í rökstuðningi dómnefndar fyrir vali Páls segir:  Heimildamyndir Páls Steingrímssonar skipta mörgum tugum frá Vestmannaeyjagosinu 1973 og fram á þennan dag. Megináhersla hans hefur verið á náttúrulífsmyndir, svo sem fuglasögurnar sem hann hefur fengist við hin síðustu ár, og áhrif manna á umhverfið. Starf Páls að fræðslu og vernd íslenskrar náttúru er langt og farsælt og hefur borið hróður hans og landsins um heimsbyggðina. Páll hefur enda hlotið viðurkenningar bæði hér á landi og erlendis fyrir störf sín, m.a. heiðursverðlaun Eddu.

 

Eftir Sigríður Dögg Auðunsdóttir • 6. nóvember 2026
Press.is, vefur Blaðamannafélags Íslands, er nú kominn í loftið. Vonast er til að hann auðveldi félagsmönnum aðgengi að upplýsingum um allt sem tengist starfsemi félagsins.
Eftir Sigríður Dögg Auðunsdóttir • 4. nóvember 2026
Gestir í fjórða þætti Blaðvarpsins eru Hjálmar Gíslason og Lilja Dögg Jónsdóttir.
Eftir Sigríður Dögg Auðunsdóttir • 4. nóvember 2026
Gervigreindarfyrirtæki nota fréttir og annað efni fjölmiðla til að þjálfa og þróa kerfi sín.