Pulitzer verðlaunin afhent

Birgir Guðmundsson • 17. apríl 2018

Pulitzer verðlaunin voru afhent í gærkvöld í Bandaríkjunum og voru stórblöðin New York Times og Washington Post áberandi meðal helstu vinningshafa.  Verðlaun í flokki blaðamennsku í almannaþágu fengu New York Times fyrir fréttavinnslu undir forustu Jodi Kantor og Megan Twohey  annars vegar og hins vegar The New Yorker fyrir fréttiavinnslu með Ronan Farrow  í forsvari. Viðfangsefni þessara frétta var kynferðisleg áreitni áhrifamanna þar á meðal í Hollywood, fréttir sem síðan höfðu gríðarleg áhrif um allan heim.

Verðlaun fyrir rannsóknarblaðamennsku fóru hins vegar til ritstjórnar Washington Post fyrir umfjöllun um  misnotkun Roy Moore, frambjóðanda í Alabama til öldungadeildarinnar, á unglingsstúlkum og tilraunum til að eyðileggja trúverðugleika þeirra blaðamanna sem upplýstu um þetta.

Pulitzer verðlaunin eru veitt í einum 14 flokkum fyrir blaðamennsku af ýmsu tagi og meira um verðlaunahafana má sjá á heimasíðu verðlaunanna.

Eftir Sigríður Dögg Auðunsdóttir • 6. nóvember 2026
Press.is, vefur Blaðamannafélags Íslands, er nú kominn í loftið. Vonast er til að hann auðveldi félagsmönnum aðgengi að upplýsingum um allt sem tengist starfsemi félagsins.
Eftir Sigríður Dögg Auðunsdóttir • 4. nóvember 2026
Gestir í fjórða þætti Blaðvarpsins eru Hjálmar Gíslason og Lilja Dögg Jónsdóttir.
Eftir Sigríður Dögg Auðunsdóttir • 4. nóvember 2026
Gervigreindarfyrirtæki nota fréttir og annað efni fjölmiðla til að þjálfa og þróa kerfi sín.