Prentmiðla skyldi ekki að vanmeta

admin • 5. september 2012

Larry Kilman, talsmaður Alþjóðlasambands dagblaða og útgefenda (WAN-IFRA) sagði á ársþingi samtakanna í Kiev í vikunni að menn skyldu varast að gera of lítið úr mikilvægi prentmiðla í þeirri umbyltingu sem er nú á fjölmiðlamarkaði. Um 2,5 milljarðarðar manna lesa prentaðar dagblaðafréttir daglega á sama tíma og „aðeins“ um 600 milljónir lesa dagblað fréttir á netinu. Útbreiðsla dagblaða á heimsvísu er líka að aukast, og í fyrra jókst hún um 1,1%. Hins vegar er þróunin nokkuð skýr og notendum netútgáfa dagblaða fjölgar hratt.

Áskorunin sem blasir við dagblöðum á netinu er að fjölga tíðni heimsókna og ákafa fólks í að skoða fréttasíðurnar, en samkvæmt skýrslu WAN-IFRA virðist áhugaleysi almennings á fréttasíðum vera vandamál þegar þetta er skoðað í alþjóðlegu samhengi.

Fram kemur að þetta „áhugaleysi“ (e. "lack of intensity“) á netfréttum hái rekstrarlegum forsendum þessarar tegundar miðlunar. Bæði birtist þetta í því að auglýsendur vilja síður auglýsa og eins hafa lesendur ekki verið áfjáðir í að kaupa aðgang að slíkum síðum. Þannig kom aðeins um 2.2% auglýsingatekna dagblaða á heimsvísu frá netútgáfum á síðasta ári samkvæmt skýrslu WAN-IFRA, en skýrslan byggir á gögnum frá 76 löndum.

Eftir Sigríður Dögg Auðunsdóttir • 6. nóvember 2026
Press.is, vefur Blaðamannafélags Íslands, er nú kominn í loftið. Vonast er til að hann auðveldi félagsmönnum aðgengi að upplýsingum um allt sem tengist starfsemi félagsins.
Eftir Sigríður Dögg Auðunsdóttir • 4. nóvember 2026
Gestir í fjórða þætti Blaðvarpsins eru Hjálmar Gíslason og Lilja Dögg Jónsdóttir.
Eftir Sigríður Dögg Auðunsdóttir • 4. nóvember 2026
Gervigreindarfyrirtæki nota fréttir og annað efni fjölmiðla til að þjálfa og þróa kerfi sín.