Pressukvöld: Rannsóknin á hvarfi Birnu Brjánsdóttur – Samstarf og samskipti við fjölmiðla  

admin • 20. febrúar 2017

Pressukvöld verður haldið nk. miðvikudag, 22.febrúar, í Blaðamannaklúbbnum, sal Blaðamannafélags Íslands Síðumúla 23,  kl. 20. Yfirskrift kvöldsins er: "Rannsóknin á hvarfi Birnu Brjánsdóttur – Samstarf og samskipti við fjölmiðla. Hvernig hjálpuðu fjölmiðlar til við málið og hvað hefði mátt fara betur? "  

Sigríður Björk Guðjónsdóttir lögreglustjóri á höfuðborgarsvæðinu og Grímur Grímsson yfirlögregluþjónn í rannsóknardeild lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu verða á pressukvöldinu þar sem þau fara yfir rannsóknina á hvarfi og andláti Birnu Brjánsdóttur og þátt fjölmiðla í málinu.    

Blaða- og fréttamenn eru hvattir til að mæta.

 

Eftir Sigríður Dögg Auðunsdóttir • 6. nóvember 2026
Press.is, vefur Blaðamannafélags Íslands, er nú kominn í loftið. Vonast er til að hann auðveldi félagsmönnum aðgengi að upplýsingum um allt sem tengist starfsemi félagsins.
Eftir Sigríður Dögg Auðunsdóttir • 4. nóvember 2026
Gestir í fjórða þætti Blaðvarpsins eru Hjálmar Gíslason og Lilja Dögg Jónsdóttir.
Eftir Sigríður Dögg Auðunsdóttir • 4. nóvember 2026
Gervigreindarfyrirtæki nota fréttir og annað efni fjölmiðla til að þjálfa og þróa kerfi sín.