Pressukvöld um ritstjórnarlegt sjálfstæði - Fjölmiðlanefnd fær erindi vegna DV

admin • 16. september 2014

Atli Þór Fanndal, fyrrum blaðamaður á DV, hefur óskað eftir því við Fjölmiðlanefnd að hún kanni hvort fjárhagsleg tengsl Reynis Traustasonar og Guðmundar Kristjánssonar í Brimi brjóti í bága við reglur Fjölmiðlalaga og ritstjórnarreglur DV um ritstjórnarlegt sjálfstæði. Um þetta hefur Atli Þór ritað langt erindi sem hann birtir á Facebook. Eftir því sem næst verður komist er þetta í fyrsta sinn sem formlega er gerð athugasemd til Fjölmiðlanefndar vegna ákvæðis um ritstjórnarlegt sjálftæði í fjölmiðlalögunum. Í þessu sambandi er ástæða til að minna á pressukvöld Blaðamannafélagsins á fimmtudag í Kornhlöðunni þar sem fjallað verður um ritstjórnarlegt sjálfstæði. Lesning á athugasemd Atla Þórs kann að vera fróðlegur undirbúningur fyrir þá umræðu! 
Sjá endurrit erindis Atla Þórs hér á Eyjunni

Eftir Sigríður Dögg Auðunsdóttir • 6. nóvember 2026
Press.is, vefur Blaðamannafélags Íslands, er nú kominn í loftið. Vonast er til að hann auðveldi félagsmönnum aðgengi að upplýsingum um allt sem tengist starfsemi félagsins.
Eftir Sigríður Dögg Auðunsdóttir • 4. nóvember 2026
Gestir í fjórða þætti Blaðvarpsins eru Hjálmar Gíslason og Lilja Dögg Jónsdóttir.
Eftir Sigríður Dögg Auðunsdóttir • 4. nóvember 2026
Gervigreindarfyrirtæki nota fréttir og annað efni fjölmiðla til að þjálfa og þróa kerfi sín.