Pressukvöld: Af blaðamannablaðri og óvönduðum falsfréttamiðlum
Blaðamannafélag Íslands boðar til pressukvölds þriðjudaginn 4. febrúar kl 20:00 um heiftúðlega orðræðu stjórnmálamanna í garð blaðamanna.
Fjölmiðlafrelsi hefur dregist saman á Íslandi síðastliðinn áratug samkvæmt rannsókn samtakanna Blaðamenn án landamæra sem segja ástæðuna meðal annars þá að blaðamenn á Íslandi verði í auknum mæli fyrir meiðandi gagnrýni af hálfu stjórnmálamanna og þeir upplifi aukinn þrýsting í sinn garð.
Nýleg ummæli Ingu Sæland, ráðherra félags- og húsnæðismála, vegna fréttaflutnings um styrki til stjórnmálaflokka og símtals við skólastjóra Borgarholtsskóla, er einungis nýjasta dæmið um skaðlega, ómálefnalega gagnrýni valdamanna á blaðamenn. Aðeins mánuður er síðan Bjarni Benediktsson, formaður Sjálfstæðisflokksins, gerði lítið úr blaðamanni í Kryddsíldinni og kallaði umfjöllun um landsfund „ blaðamannablaður.”
Víða um heim grafa stjórnmálamenn markvisst undan trausti til fjölmiðla og trúverðugleika blaðamanna með neikvæðri orðræðu, málaferlum og lagasetningu sem dregur úr fjölmiðlafrelsi og öryggi blaðamanna.
En hver er staðan á Íslandi og hvað er til ráða? Hvernig er hægt að stemma stigu við ómálefnalegri gagnrýni hér á landi og auka vitund valdafólks um mikilvægi blaðamennsku og frjálsra fjölmiðla? Blaðamannafélag Íslands býður til samtals um málin þriðjudaginn 4. febrúar í húsakynnum félagsins, Síðumúla 23.
Andrea Sigurðardóttir, blaðamaður Morgunblaðsins, og Erla Björg Gunnarsdóttir, ritstjóri Stöðvar 2, Vísis og Bylgjunnar verða með stuttar framsögur og í kjölfarið verður opnað fyrir umræður.
Boðið verður upp á léttar veigar.



