Pressukvöldið verður 17. maí

Sigríður Dögg Auðunsdóttir • 5. maí 2021

Vegna þess að stjórnvöld hafa ákveðið að framlengja núgildandi samkomutakmarkanir um viku hefur stjórn BÍ ákveðið að fresta fyrirhuguðu pressukvöldi, sem átti að halda annað kvöld, til mánudagsins 17. maí næstkomandi kl. 20. Vonast er til að þá verði búið að rýmka fjöldatakmarkanir svo minnst 50 megi koma saman í rými í stað 20 nú.

Yfirskrift fundarins er:  Heilbrigð og nauðsynleg gagnrýni á störf fjölmiðlafólks eða árásir og ofsóknir. Hvar liggja mörkin? Umræðufundur félaga í Blaðamannafélagi Íslands um sjálfstæði fjölmiðla, tjáningarfrelsið og árásir stórfyrirtækja og stjórnmálaafla á fjölmiðla og fjölmiðlafólk.

Pressukvöldið verður nánar auglýst þegar nær dregur. 

Eftir Sigríður Dögg Auðunsdóttir • 6. nóvember 2026
Press.is, vefur Blaðamannafélags Íslands, er nú kominn í loftið. Vonast er til að hann auðveldi félagsmönnum aðgengi að upplýsingum um allt sem tengist starfsemi félagsins.
Eftir Sigríður Dögg Auðunsdóttir • 4. nóvember 2026
Gestir í fjórða þætti Blaðvarpsins eru Hjálmar Gíslason og Lilja Dögg Jónsdóttir.
Eftir Sigríður Dögg Auðunsdóttir • 4. nóvember 2026
Gervigreindarfyrirtæki nota fréttir og annað efni fjölmiðla til að þjálfa og þróa kerfi sín.