Ráðstefna um rannsóknarblaðamennsku í Noregi (leiðrétt)

admin • 29. júní 2015

Norræni blaðamannaskólinn í Árósum (NJC) styður vest-norræna rannsóknarblaðamenn sem vilja fara á alþjóðlega ráðstefnu um rannsóknarblaðamennsku (Global Investigative Journalism Conference)  í Lillehammer í Noregi í haust, frá 8-11 október 2015. (Ath ekki í nóvember eins og sagði í fyrri útgáfu af þessari tilkynningu)   Um er að ræða styrki sem blaðamenn frá Grænlandi, Færeyjum og Íslandi geta sótt um og eiga að duga fyrir þátttökugjaldi, hóteli og fæði.  Þess má geta að einnig er hægt er að sækja um styrk til fararinnar úr Endurmenntunarsjóði BÍ.
Sjá nánar hér

Eftir Sigríður Dögg Auðunsdóttir • 6. nóvember 2026
Press.is, vefur Blaðamannafélags Íslands, er nú kominn í loftið. Vonast er til að hann auðveldi félagsmönnum aðgengi að upplýsingum um allt sem tengist starfsemi félagsins.
Eftir Sigríður Dögg Auðunsdóttir • 4. nóvember 2026
Gestir í fjórða þætti Blaðvarpsins eru Hjálmar Gíslason og Lilja Dögg Jónsdóttir.
Eftir Sigríður Dögg Auðunsdóttir • 4. nóvember 2026
Gervigreindarfyrirtæki nota fréttir og annað efni fjölmiðla til að þjálfa og þróa kerfi sín.