Ráðstefna fyrir unga blaðamenn í Pétursborg

Birgir Guðmundsson • 18. september 2017

Samtökin Mediacongress hafa nú boðið til ráðstefnu fyrir unga blaðamenn undir yfirskriftinni „Samræða menningarheima“.  Ráðstefnan mun fara fram á State Hermitage safninu í St. Pétursborg  21 – 23 nóvember næstkomandi.  Ungum blaðamönnum frá Evrópulöndum, á aldrinum 18 – 35 ára, þar á meðal frá Íslandi er sérstaklega boðið að taka þátt í ráðstefnunni en þeir verða að standa sjálfir straum af kostnaði við ferðir og gistingu en fá frí ráðstefnugjöld. Þess má geta að för á ráðstefnu af þessu tagi getur verið styrkhæf úr Endurmenntunarsjóði BÍ.

Eftir Sigríður Dögg Auðunsdóttir • 6. nóvember 2026
Press.is, vefur Blaðamannafélags Íslands, er nú kominn í loftið. Vonast er til að hann auðveldi félagsmönnum aðgengi að upplýsingum um allt sem tengist starfsemi félagsins.
Eftir Sigríður Dögg Auðunsdóttir • 4. nóvember 2026
Gestir í fjórða þætti Blaðvarpsins eru Hjálmar Gíslason og Lilja Dögg Jónsdóttir.
Eftir Sigríður Dögg Auðunsdóttir • 4. nóvember 2026
Gervigreindarfyrirtæki nota fréttir og annað efni fjölmiðla til að þjálfa og þróa kerfi sín.