Ráðstefna um gagna- og rannsóknarblaðamennsku

Birgir Guðmundsson • 20. desember 2017

Athygli blaðamanna er hér með vakin á því að forskráning á Ráðstefnu um rannsóknarblaðamennsku og gagnabanka sem haldin verður í Belgíu í lok maí stendur nú yfir og bjóðast þá sérstök kjör á ráðstefnugjaldi fram til áramóta.  Þessi ráðstefna er gríðarlega vinsæl meðal blaðamanna sem vilja efla tengslanet sitt og samstarf en hún verður í smábænum Mechelen rétt utan við Brussel, 26.-27. maí 2018. Athygli er vakin á að hægt er að sækja um styrk til BÍ til að dekka hluta kostnaðar við ferð af þessu tagi.    

Eftir Sigríður Dögg Auðunsdóttir • 6. nóvember 2026
Press.is, vefur Blaðamannafélags Íslands, er nú kominn í loftið. Vonast er til að hann auðveldi félagsmönnum aðgengi að upplýsingum um allt sem tengist starfsemi félagsins.
Eftir Sigríður Dögg Auðunsdóttir • 4. nóvember 2026
Gestir í fjórða þætti Blaðvarpsins eru Hjálmar Gíslason og Lilja Dögg Jónsdóttir.
Eftir Sigríður Dögg Auðunsdóttir • 4. nóvember 2026
Gervigreindarfyrirtæki nota fréttir og annað efni fjölmiðla til að þjálfa og þróa kerfi sín.