Réttarbót til finnskra lausamanna

admin • 20. febrúar 2013

Frá því um áramótin síðustu er staða finnskra lausamanna í blaðamennsku (freelance) hvað varðar rétt til atvinnuleysisbóta mun betri en áður. Þetta má þakka lagabreytingu sem viðurkennir að lausamennska í blaðamennsku er blaðamennska, en ekki fyrst og fremst sjálfstæður atvinnurekstur. Þar með eiga lausamenn – eins og aðrir blaðamenn og launamenn– rétt á að sækja um atvinnuleysisbætur. Lagabreytingarnar eru ekki hvað síst til komnar vegna langvarandi og stöðurs þrýstings frá Blaðamannaféalgi Finnlands. Í þessu felst einnig breyting á hvað það varðar að nú þurfa lausamenn ekki að bíða mánuðum saman eftir því að geta komist á atvinnuleysisbætur.

Sjá meira hér

Eftir Sigríður Dögg Auðunsdóttir • 6. nóvember 2026
Press.is, vefur Blaðamannafélags Íslands, er nú kominn í loftið. Vonast er til að hann auðveldi félagsmönnum aðgengi að upplýsingum um allt sem tengist starfsemi félagsins.
Eftir Sigríður Dögg Auðunsdóttir • 4. nóvember 2026
Gestir í fjórða þætti Blaðvarpsins eru Hjálmar Gíslason og Lilja Dögg Jónsdóttir.
Eftir Sigríður Dögg Auðunsdóttir • 4. nóvember 2026
Gervigreindarfyrirtæki nota fréttir og annað efni fjölmiðla til að þjálfa og þróa kerfi sín.