Samkomulag um aðgengi blaðamanna að hamfarasvæðum á Reykjanesi
Eyrún Magnúsdóttir • 12. mars 2024
Blaðamannafélag Íslands og Lögreglustjórinn á Suðurnesjum hafa gert samkomulag um bætt aðgengi fjölmiðla að hamfarasvæðum á Reykjanesi. Í því felst að Blaðamannafélag Íslands hefur gefið út númeraða passa sem veita félagsmönnum aðgengi að Grindavík og öðrum svæðum sem teljast hættusvæði en fjölmiðlar þurfa aðgang að til að geta veitt stjórnvöldum aðhald, sagt fréttir og skrásett söguna.
Samkomulagið
sem nú hefur tekið gildi felur í sér að Blaðamannafélagið gefur út númeraða passa með samþykki Lögreglustjórans á Suðurnesjum. Pössunum var skipt niður á þá fjölmiðla sem mest hafa sinnt hamfarasvæðum á Reykjanesi og hluti þeirra er í vörslu félagsins og geta sjálfstætt starfandi félagsmenn óskað eftir því að fá í hendur passa tímabundið.



