Samkomulag um viðbragðsáætlun til að tryggja öryggi og frelsi blaðamanna

admin • 7. desember 2014

Evrópusamband blaðamanna, Alþjóðasamband blaðamanna og þrjú samtök sem láta sig tjáningarfrelsi fjölmiðla varða  ásamt fulltrúum Evrópuráðsins skrifuðu í síðustu viku undir samkomulag um vettvang eða viðbragðsáætlun til að tryggja sem best öryggi blaðamanna við störf sín.  Samkomulagið var undirritað við hátíðlega athöfn að  á ráðstefnu í París sem Þing Evrópuráðsins og efri deild franska þingsins höfðu skipulagt.  

Þessi vettvangur  eða viðbragðsáætlun byggir á sameiginlegu alþjóðlegu vefsetri þar sem viðurkennd samtök og stofnanir á sviði fjölmiðlafrelsis geta sett fram „viðvaranir“  um að tjáningarfrelsi tiltekinna fjölmiðla eða fjölmiðlafólks í einhverju landi sé á einhvern hátt í hættu.  Með því er hugmyndin að alþjóðlegir aðilar s.s.  Evrópuráðið, fjölmiðlafulltrúar ÖSE, Evrópusambandið eða Sameinuðu þjóðirnar geti brugðist hratt við og beitt sér í málum.

 Í viðvörunum kæmu fram staðreyndir – sem búið væri að sannreyna af þeim samtökum sem viðurkennd hafa verið – um hugsanlega vá sem blasti við t.d. blaðamönnum, bloggurum og rithöfundum eða hættu sem steðjaði að heimildarmönnum þeirra. Eins gæti fallið undir þetta gróf brot á persónuvernd og þrýstingur á blaðamenn í gegnum misnotkun á  löggjöf  t.d. um meiðyrði, minnihlutahópa, þjóðaröryggi eða öfgahyggju.

Sjá minnisblað Evrópuráðsins um málið hér

Sjá einnig frétt  hérna

Eftir Sigríður Dögg Auðunsdóttir • 6. nóvember 2026
Press.is, vefur Blaðamannafélags Íslands, er nú kominn í loftið. Vonast er til að hann auðveldi félagsmönnum aðgengi að upplýsingum um allt sem tengist starfsemi félagsins.
Eftir Sigríður Dögg Auðunsdóttir • 4. nóvember 2026
Gestir í fjórða þætti Blaðvarpsins eru Hjálmar Gíslason og Lilja Dögg Jónsdóttir.
Eftir Sigríður Dögg Auðunsdóttir • 4. nóvember 2026
Gervigreindarfyrirtæki nota fréttir og annað efni fjölmiðla til að þjálfa og þróa kerfi sín.