Samstaða og fjölmiðlafrelsi í brennidepli á ársfundi EFJ

Freyja Steingrímsdóttir • 23. júní 2026

Ársfundur evrópsku blaðamannasamtakanna (EFJ) var haldinn í Ankara í Tyrklandi dagana 17.- 19. júní undir yfirskriftinni Journalism under siege . Á fundinum komu saman 85 fulltrúar frá 42 stéttar- og fagfélögum blaðamanna í Evrópu til að ræða stöðu fjölmiðlafrelsis, öryggi blaðamanna og helstu áskoranir sem fagið stendur frammi fyrir. Sigríður Dögg Auðunsdóttir, formaður Blaðamannafélags Íslands, sótti fundinn fyrir hönd félagsins.

Meginstef fundarins var samstaða. Í lokaorðum sínum lagði Maja Sever, forseti EFJ, áherslu á að blaðamenn þyrftu að efla samstarf þvert á landamæri og fyrir sjálfstæðri blaðamennsku, fjölmiðlafrelsi og lýðræði á tímum þegar pólitískur þrýstingur, efnahagslegt óöryggi og vaxandi áhrif stafrænna stórfyrirtækja ógna starfsumhverfi fjölmiðla.

Fundurinn samþykkti alls 36 ályktanir og yfirlýsingar um stöðu fjölmiðlafrelsis og réttindi blaðamanna. Fundurinn lýsti yfir stuðningi við tyrkneska blaðamenn sem búa við mikinn þrýsting og takmarkanir á störfum sínum, og einnig við blaðamenn á Gaza og í Úkraínu sem tryggja almenningi á alþjóðavísu fregnir af átakasvæðum.

Þá voru til umræðu má sem snerta fjölmiðlafrelsi víða í Evrópu, meðal annars í Serbíu, Tékklandi, Frakklandi, Grikklandi og Póllandi. Fundurinn áréttaði mikilvægi þess að ríki innleiði að fullu Evrópureglur um vernd blaðamanna gegn tilefnislausum málshöfðunum (Anti-SLAP P) og framfylgi Evrópsku fjölmiðlafrelsisreglugerðinni (EMFA).

Á fundinum var jafnframt fjallað um áhrif gervigreindar, stafrænnar umbreytingar og versnandi starfsskilyrða blaðamanna. Fulltrúar lögðu áherslu á að efla stuðning við sjálfstæða og vandaða blaðamennsku í Evrópu og tryggja henni sterkari fjárhagslegan grundvöll.

Í fyrsta sinn samþykkti EFJ einnig að hefja markvissa vinnu með nýjum kynslóðum blaðamanna sem miðla fréttum á stafrænum vettvangi, með það að markmiði að fagleg gildi og siðferðileg viðmið blaðamennsku haldist óbreytt þrátt fyrir breytt miðlau mhverfi.

Eftir Sigríður Dögg Auðunsdóttir • 6. nóvember 2026
Press.is, vefur Blaðamannafélags Íslands, er nú kominn í loftið. Vonast er til að hann auðveldi félagsmönnum aðgengi að upplýsingum um allt sem tengist starfsemi félagsins.
Eftir Sigríður Dögg Auðunsdóttir • 4. nóvember 2026
Gestir í fjórða þætti Blaðvarpsins eru Hjálmar Gíslason og Lilja Dögg Jónsdóttir.
Eftir Sigríður Dögg Auðunsdóttir • 4. nóvember 2026
Gervigreindarfyrirtæki nota fréttir og annað efni fjölmiðla til að þjálfa og þróa kerfi sín.